Við höfuðverk, öðrum tilfallandi verkjum og mígreni.

TREO freyðitöflur (asetýlsalicýlsýra 500 mg/koffín 50 mg) er lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils og er notað við höfuðverk, öðrum tilfallandi verkjum og mígreni. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Treo nema í samráði við lækni og aldrei ef þau eru með hita. Hafið samband við lækni ef einkenni versna eða batna ekki innan 3 daga ef um hita og mígreni er að ræða, eða innan 5 daga ef um höfuðverk er að ræða. Þungaðar konur og konur sem fyrirhuga að verða þungaðar ættu að forðast notkun Treo. Ekki má nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni. Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er Viatris Aps.

Spurningar og svör um Treo

Hér fyrir neðan eru algengar spurningar og svör um verkjalyfið Treo. Smellið á spurningarnar til að sjá svörin.

Ef þú finnur ekki svör við einhverjum spurningum eða vilt lesa allan fylgiseðilinn, eru frekari upplýsingar hér: www.serlyfjaskra.is

Sýna öll svör

  • Hvað er Treo?

    Treo eru freyðitöflur sem inniheldur acetýlsalicýlsýru og koffín. Acetýlsalicýlsýran hefur verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi áhrif. Koffín eykur verkjastillandi áhrif asetýlsalicýlsýru.

  • Hvað inniheldur Treo?

    Treo inniheldur asetýlsalicýlsýru 500 mg og koffín 50 mg.

  • Hvernig verkar Treo?

    Asetýlsalicýlsýra dregur úr verkjum með því að hindra myndun tiltekinna efna sem nefnast prostaglandín. Hitastillandi áhrif stafa af því að asetýlsalicýlsýra eykur hitalosun líkamans.

    Koffín eykur verkjastillandi áhrif asetýlsalicýlsýru. Koffín hefur auk þess verkjastillandi áhrif vegna þess að það veldur því að æðar í heila, sem hafa víkkað t.d. við mígreniskast, dragast saman á ný. Koffín hefur einnig örvandi áhrif.

  • Hvernig á að nota Treo?

    Fullorðnir og unglingar eldri en 15 ára: 1-2 freyðitöflur 1-4 sinnum á sólarhring eða samkvæmt fyrirmælum læknis. Má nota að hámarki í 10 sólarhringa í mánuði.

    Verkjastillandi áhrif aukast ekki við að taka fleiri en 2 freyðitöflur í einu. Hafið samband við lækni ef einkenni versna eða batna ekki innan 3 daga ef um hita og mígreni er að ræða, eða innan 5 daga ef um höfuðverk er að ræða.

    Leysa á freyðitöfluna í hálfu glasi af vatni.

    Notkun handa börnum

    Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Treo nema í samráði við lækni.

    Varnaðarorð: Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Treo nema í samráði við lækni og aldrei ef þau eru með hita. Börn sem fá meðferð með Treo eiga á hættu að fá Reyes heilkenni, sem er sjadgæfur en alvarlegur kvilli.

    TREO freyðitöflur (asetýlsalicýlsýra 500 mg/koffín 50 mg) er lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils og er notað við höfuðverk, öðrum tilfallandi verkjum og mígreni. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Treo nema í samráði við lækni og aldrei ef þau eru með hita. Hafið samband við lækni ef einkenni versna eða batna ekki innan 3 daga ef um hita og mígreni er að ræða, eða innan 5 daga ef um höfuðverk er að ræða. Þungaðar konur og konur sem fyrirhuga að verða þungaðar ættu að forðast notkun Treo. Ekki má nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni. Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er Viatris Aps.

  • Má nota Treo á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur?

    Þungaðar konur eiga ekki að nota Treo á síðustu þremur mánuðum meðgöngunnar. Þungaðar konur og konur sem fyrirhuga að verða þungaðar ættu að forðast notkun Treo. Ekki má nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni.

    Asetýlsalicýlsýra og koffín berast í brjóstamjólk, en ekki er líklegt að það skaði barnið. Hafa á samband við lækni ef Treo er notað í meiri mæli meðan á brjóstagjöf stendur en við tilfallandi verk.

    Eins og mörg bólgueyðandi gigtarlyf (svokölluð NSAID-lyf) getur Treo dregið úr líkum á þungun og því er notkun þess ekki ráðlögð fyrir konur sem reyna að verða þungaðar. Verkunin er skammvinn, þ.e. hættir þegar notkun lyfjanna er hætt.

  • Hvernig á að geyma lyfið?

    Ekki skal nota lyfið eftir fyrningardagsetningu sem tilgreind er á umbúðunum. Treo má geyma við stofuhita. Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Geymið í vel lokuðum upprunalegum umbúðum. Rakanæmt.

    Ekki skal nota lyfið ef ediklykt er úr töfluílátinu.

    Af umhverfis- og öryggisástæðum á að skila lyfjaleifum og fyrndum lyfjum í apótek, sem sér um að senda þau til eyðingar.