Treo eru freyðitöflur sem eru leystar upp í vatni. Freyðitöflur frásogast hraðar en hefðbundnar töflur og hámarksþéttni í plasma næst eftir u.þ.b 30 mín. Verkunartíminn er 4-6 klst.
Hægt er að nota Treo við tilfallandi verkjum, svo sem:
TREO freyðitöflur (asetýlsalicýlsýra 500 mg/koffín 50 mg) er lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils og er notað við höfuðverk, öðrum tilfallandi verkjum og mígreni. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Treo nema í samráði við lækni og aldrei ef þau eru með hita. Hafið samband við lækni ef einkenni versna eða batna ekki innan 3 daga ef um hita og mígreni er að ræða, eða innan 5 daga ef um höfuðverk er að ræða. Þungaðar konur og konur sem fyrirhuga að verða þungaðar ættu að forðast notkun Treo. Ekki má nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni. Lesið fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er Viatris Aps.
Treo eru freyðitöflur sem eru leystar upp í vatni. Freyðitöflur frásogast hraðar en hefðbundnar töflur og hámarksþéttni í plasma næst eftir u.þ.b 30 mín. Verkunartíminn er 4-6 klst.
Treo inniheldur asetýlsalicýlsýru og koffín. Acetýlsalicýlsýra hefur verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi áhrif. Koffín eykur verkjastillandi áhrif asetýlsalicýlsýru.
Fullorðnir og unglingar eldri en 15 ára: 1-2 freyðitöflur 1-4 sinnum á sólarhring eða samkvæmt fyrirmælum læknis. Má nota að hámarki í 10 sólarhringa í mánuði. Verkjastillandi áhrif aukast ekki við að taka fleiri en 2 freyðitöflur í einu.
Verkur er flókið fyrirbæri. Hægt er að lýsa verk á marga vegu, t.d. sem óþægilegri líkamlegri eða tilfinningalegri upplifun. Eingöngu sá sem finnur fyrir verknum veit hvernig tilfinninin er. Ekki eru til hlutlægar aðferðir til að mæla hve miklum verk maður finnur fyrir. Ef maður finnur fyrir verk er eðlilegt að verða hræddur og órólegur. Ótti við að þola ekki verkinn getur valdið því að hann virðist meiri en ella.
Meira um verki*Treo inniheldur asetýlsalicýlsýru og koffín. *Treo er notað við höfuðverk, öðrum tilfallandi verkjum og mígreni.
Asetýlsalicýlsýra hefur verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi verkun. Asetýlsalicýlsýra dregur úr verkjum með því að hindra myndun tiltekinna efna sem nefnast prostaglandín. Hitastillandi áhrif stafa af því að asetýlsalicýlsýra eykur hitalosun líkamans.
Koffín eykur áhrif asetýlsalicýlsýru og hefur auk þess verkjastillandi áhrif vegna þess að það veldur því að æðar í heila, sem hafa víkkað t.d. við mígrenikast, dragast saman á ný. Koffín hefur einnig örvandi áhrif.